02/05/2026
From local communities to the international stage! The Triennial World Conference highlights the strength of women working together across borders.
So happy to have member representation from many parts of the world in attendance! 🌍💚
Á þriggja ára fresti heldur ACWW heimsþing sem sameinar konur og aðildarfélög víðs vegar að úr heiminum. Nú stendur yfir Heimsþing í Ottawa í Kanada. Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti KÍ er á þinginu ásamt hópi kvenna frá Kvenfélagi Grímsneshrepps.
Þingið er vettvangur til að fagna árangri, berjast fyrir hagsmunum kvenna og efla getu samtakanna til góðra verka. Fjallað er um ályktanir og tillögur og kosið í stjórn ACWW (Board of Trustees). Nýr heimsforseti og evrópuforseti verður kosin að þessu sinni í Ottawa. Á heimsþingum eru óteljandi tækifæri til að kynnast nýju fólki og mynda alþjóðleg vináttubönd. Í gær fór fram setningarathöfn þingsins.
Við sem heima sitjum sendum góðar kveðjur til Ottawa. 🥰
Frá vinstri á meðfylgjandi mynd eru: Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti Kvenfélagasamband Íslands, María Huld Hilmarsdóttir, Fönn Eyþórsdóttir, Þórunn Drífa Oddsdóttir, Margét Gunnarsdóttir, Díana Símonardóttir, Ilse Häsler, Sandra Gunnarsdottir formaður Kvenfélags Grímsneshrepps og Erla María Kristinsdóttir, allar félagskonur í Kvenfélagi Grímsneshrepps.
Kvenfélag Grímsneshrepps