Íslendingafélagið Kjartan í Þrándheimi

Íslendingafélagið Kjartan í Þrándheimi Kontaktinformasjon, kart og veibeskrivelse, kontaktskjema, åpningstider, tjenester, stjerner, bilder, videoer og kunngjøringer fra Íslendingafélagið Kjartan í Þrándheimi, Ideell organisasjon, Trondheim.

Keila með Kjartan 🎳Þann 23 maí  kl 19 ætlum við að hittast í Dora1 og eiga saman skemmtilegt kvöld! Við spilum keilu, en...
18/04/2026

Keila með Kjartan 🎳

Þann 23 maí kl 19 ætlum við að hittast í Dora1 og eiga saman skemmtilegt kvöld! Við spilum keilu, en á staðnum er líka hægt að spila biljard, shuffleboard og snooker – svo það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Ef þú hefur ekki áhuga að spila er líka tilvalið að kíkja bara, spjalla og hitta aðra Íslendinga 😊

Kaffihittingur.Brúðuleikhús, föndur, spil og nýsteiktar flatkökur með hangikjöti ☕
18/04/2026

Kaffihittingur.

Brúðuleikhús, föndur, spil og nýsteiktar flatkökur með hangikjöti ☕

Kaffihittingur með Kjartan þann 18.Apríl kl 12 í Brovakten. Föndur fyrir krakkana, skemmtilegt útisvæði og heitt á könnu...
09/04/2026

Kaffihittingur með Kjartan þann 18.Apríl kl 12 í Brovakten.
Föndur fyrir krakkana, skemmtilegt útisvæði og heitt á könnunni og með því í boði félagsins. Hlökkum til að sjá ykkur!

Páskabrall 2026 með Íslensku Kirkjunni 🐣Frábær dagur og sólin sterk svo það var gróðursett páska liljur og tekið með sér...
28/03/2026

Páskabrall 2026 með Íslensku Kirkjunni 🐣
Frábær dagur og sólin sterk svo það var gróðursett páska liljur og tekið með sér heim, einnig var föndrað inni.
Kirkjan byrjaði á fallegri messu og kór Kjartans sungu nokkur lög, síðan var stutt brúðuleikrit fyrir krakkana.
Páskabingóið var á sínum stað og gekk frábærlega, og viljum við þakka þeim sem studdu okkur með vinningum ( .johanns - Dora1 - ).
no

Verið hjartanlega velkomin að vera með í páskabralli í Trondheim þar sem páskabrall, leikur, skapandi verkefni og huggul...
14/03/2026

Verið hjartanlega velkomin að vera með í páskabralli í Trondheim þar sem páskabrall, leikur, skapandi verkefni og hugguleg samvera verða á boðstólnum þann 28.mars.

Páskabrallið verður haldið í Sverresborg kirkesenter.

Það verða fullt af skapandi og skemmtilegum verkefnum og stöðvum. Viltu blása úr eggi? Eða skreyta páskagreinar? Mála,líma og föndra eitthvað fínt? Eða bara spjalla við alla hina yndislegu Íslendingana sem mæta?

Það er svo gaman og gott fyrir sálina að stússa og bralla og búa eitthvað til!

Við hvetjum ykkur til að koma við, hitta aðra Íslendinga, spjalla, föndra og njóta samverunnar saman.

Íslendingafélagið Kjartan sér um kaffihlaðborðið sem er Pálínuboð.

Verið hjartanlega velkomin til okkar.

Góðan dag. Aðalfundur Íslendingafélagsins Kjartans fór fram á Brovakten þann 7. mars 2026.Á fundinum var farið yfir star...
10/03/2026

Góðan dag.

Aðalfundur Íslendingafélagsins Kjartans fór fram á Brovakten þann 7. mars 2026.
Á fundinum var farið yfir starfsemi síðasta árs og rætt um framtíð félagsins. Nokkrar breytingar sem gerðar voru á síðasta ári hafa reynst vel og því verður haldið áfram með þær. Markmiðið er áfram að halda að lágmarki einn viðburð í mánuði.
Við munum einnig halda áfram að gefa út fréttablað og sjá hvernig það nýtist og hvort það sé vinsælt meðal fólks
Einnig var rætt um þorrablótið. Markmiðið er að gera það enn betra og jafnvel stækka viðburðinn. Til dæmis með því að bjóða upp á meira úrval af mat, ekki eingöngu þorramat. Það gæti gert fleiri kleift að mæta, auk þess sem þorramatur er oft bæði dýr og erfitt að flytja frá Íslandi.

Fjárhagsstaða félagsins er: 33.000kr

Í stjórn félagsins sitja:
Aðalheiður Magnúsdóttir – Formaður
Thorunn Eydís Hraundal – Varaformaður
Davíð Agust Davíðson - Gjaldkeri
Dagur Valberg Johannsson – innra eftirlit

Bestu kveðjur,
Stjórn Íslendingafélagsins Kjartans

Aðalfundur Íslendingafélagsins Kjartans í Þrándheimi verður haldinn þann 7.mars 2026.Þar munum við fara yfir stöðu félag...
04/03/2026

Aðalfundur Íslendingafélagsins Kjartans í Þrándheimi verður haldinn þann 7.mars 2026.

Þar munum við fara yfir stöðu félagsins, markmið og ný stjórn tekur við. Þetta er gott tækifæri til þess að koma með hugmyndir eða jafnvel spyrja spurninga.

Ef þig langar að bjóða þig fram í stjórn eða vilt koma einhverju nafnlaust á framfæri þá má hafa samband við Kjartan síðuna á facebook eða instagram, netfang: [email protected] eða senda á einhvern í núverandi stjórn.

Takið með handavinnu eða notið listrænu aðstöðuna brovakten til að leika ykkur í listum. Áhugasamir eru hjartanlega velkomnir að hjálpa Kjartan að hanna eða þróa tilraun af brúðum í brúðuleikhús um Laxdælasögu.

Allir velkomnir.

Bolludagur Fallegur dagur í Þrándheimi. Margir bjuggu til bolluvendi og einnig var teiknað á meðan var ilmur úr eldhúsin...
21/02/2026

Bolludagur

Fallegur dagur í Þrándheimi. Margir bjuggu til bolluvendi og einnig var teiknað á meðan var ilmur úr eldhúsinu af nýbökuðum bollum. Takk fyrir daginn 😄

Ekkert smá fallegt 🤩♥️
19/02/2026

Ekkert smá fallegt 🤩♥️

17/02/2026

Nýr stjórnandi / Ny dirigent

Það er stór gleði að kynna nýjan stjórnanda fyrir Kór Kjartans.
Andreas Dundas Helgheim er en Trondheimsbasert dirigent, sanger og komponist:

Hann segir sjálfur:
- En evig nysgjerrighet gjennom utdanning og utøvelse har ført meg til og fra klassisk, opera, rock, soul, musikaler og show, punk, steinkirkemusikk og mere til. Med åpent blikk har jeg sett at alle stiler og sjangere har sine spesialiteter, men ingen er ekspert i alt. Forhåpentligvis har det lært meg noen triks som kan gi musikken noe ekstra, kanskje fra uventet, friskt og spennende hold.

I tillegg til verdens beste islendinger, dirigerer jeg også korene Cantare og Svartlamon damekor, og som sanger er jeg fast i Nidaros Vokal på femte året. Sangerbakgrunnen er viktig for meg, for vi driver med et lagspill som trenger en felles forståelse. Med den kan vi åpne døren for musikalske godsaker og et overskudd som skaper opplevelser for både sangere, dirigent og ikke minst publikum.

Adresse

Trondheim

Varslinger

Vær den første som vet og la oss sende deg en e-post når Íslendingafélagið Kjartan í Þrándheimi legger inn nyheter og kampanjer. Din e-postadresse vil ikke bli brukt til noe annet formål, og du kan når som helst melde deg av.

Del