16/03/2025
Utanríkisráðuneytið hefur nú gefið út niðurstöður úttektar sem gerð var á verkefninu okkar. Það var mjög lærdómsríkt fyrir okkur að taka þátt og mikil hvatning fyrir okkur að sjá niðurstöðuna! 👏🏽
Hér hægt að skoða skýrsluna í heild sinni:
https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Utanrikismal/Throunarsamvinna/uttektar--og-ryniskyrslur/HAVEN%20RESCUE%20HOME_FINAL%20EVALUATION%20REPORT_VERKIS%20Consulting%20Engineers.pdf
Niðurstöður nýrrar úttektar á vegum utanríkisráðuneytisins, sem framkvæmd var af Verkís verkfræðiskrifstofu, benda til að verkefnið Haven Rescue Home í Kenía, sem utanríkisráðuneytið styrkti með nýliðastyrk fyrir frjáls félagasamtök um fjórar milljónir króna árið 2021, hafi skilað haldbærum árangri.
Haven Rescue Home er heimili í Naíróbí fyrir stúlkur 18 ára og yngri, sem eru ýmist barnshafandi eða mæður ungra barna, og er rekið af Önnu Þóru Baldursdóttur. Heimilið var stofnað árið 2015 með það að markmiði að skapa öruggt umhverfi og styðja við ungar stúlkur og börn þeirra.
Sjá frétt frá utanríkisráðuneytinu í athugasemd.
📸Anna Þóra Baldursdóttir ásamt haghöfum í verkefninu hennar í Naíróbí.