15/03/2024
VIÐSKIPTASENDINEFND FRANSK-ÍSLENSKA VIÐSKIPTARÁÐSINS Á FRÖNSKU RIVIERUNA & TIL MÓNAKÓ
Fyrri daginn verður Vísinda- og tæknigarðurinn Sophia Antipolis heimsóttur og áherslan verður á stafræna þróun. Sendinefndin fær kynningu á Sophia Antipolish tæknigarðinum, Telecom Valley cluster (stafrænum klasa), EURECOM – EDHEC frumkvöðlasetrinu, Amadeus og Accenture Labs.
Sophia Antipolis er leiðandi tækni- og vísindagarður var sem stofnaður fyrir rúmlega 50 árum, sá fyrsti sinnar tegundar í Evrópu. Mikil gróska er í Sophia Antipolis sem er hringiðja nýsköpunar og hugmynda. Þar eru um 2.500 fyrirtæki og árlega skapast þar um 1.000 störf.
Síðari daginn verður sendinefndin í Mónakó þar sem Monaco Economic Board verður heimsótt. Hópurinn fær kynningu á hinu nýja fasteignaþróunarsvæði Mareterra og fasteignum sem verið er að byggja á landfyllingu út í Miðjarðarhafið. Einnig verður kynning á umhverfisverkefnum hjá Prince Albert II Foundation.
Sendinefndin borðar saman bæði kvöldin en síðara kvöldið fer hópurinn á vínkynningu í hinum virta vínkjallara Hôtel de Paris Monte-Carlo.
Takmarkaður fjöldi kemst í ferðina og skráning er opin til 15. mars.
Nánari upplýsingar um dagskrá eru hér: https://millilandarad.my.canva.site/agenda-nice-monaco
Vinsamlega veitið því athygli að dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Þátttökugjald er kr. 750€ á mann (ca. 112.000 kr. ISK) Innifalið í gjaldi eru hádegisverðir báða dagana, kvöldverður þann 4.júní og vínsmökkun 5. júní. Akstur sem tekur mið af dagskránni er einnig innifalinn.
Þátttakendur bóka sitt eigið flug eftir hentugleika, en skipulögð dagskrá FRÍS verður dagana 4. og 5. júní. Hentugir ferðadagar eru því 3. og 6. júní nema þátttakendur kjósi að lengja dvöl sína á Frönsku Rivíerunni.
Búið er að taka frá hótelherbergi á þremur hótelum sem hægt er að bóka beint hjá Eric Biard, stjórnarmeðlimi FRÍS og eiganda Island Tours. Eric sendir link á hótelin til þeirra sem vilja þegar skráningu og greiðslu er lokið.
Vinsamlega skráið ykkur fyrir kl. 12:00 þann 15. mars hér eða með því að smella á skráningarhnappinn hér að neðan. Fjöldi þátttakenda er takmakarkaður en við biðjum fólk um að bóka hvorki flug né hótel þar til eftir 15.mars þar sem ná þarf lágmarksþáttöku í ferðina til þess að hún verði farin. Eftir 15. mars er skráning bindandi.
Hægt er að skrá sig hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSeO8TkN7_Yf5K5HTKqYvEgSCwNEDwikrHkEeuzjIcLpbrCyLQ/viewform